Haustmót GA - verðlaunahafar

Það var glatt á hjalla í gær, sunnudag, þegar haustmót GA var haldið í toppveðri á Jaðarsvelli.

58 kylfingar tóku þátt og var mikið um góða spilamennsku hjá kylfingum. Við vonumst að sjálfsögðu til að veðrið verði gott næstu daga og vikur og að við getum haldið annað mót seinna fyrir ykkur.

Hér má sjá verðlaunahafa úr mótinu.

Punktakeppni með forgjöf:
1.sæti: Konráð Vestmann Þorsteinsson, 39 punktar - gjafabréf á Ecco skóm
2.sæti: Hjörtur Sigurðsson, 38 punktar - 10.000kr gjafabréf á Rub23 + GA buff og GA kanna
3.sæti: Bjarni Þórhallsson, 37 punktar - bestur seinni 9 - 10.000kr gjafabréf á Strikið

Höggleikur án forgjafar:
1.sæti: Heiðar Davíð Bragason, 69 högg - 10.000kr gjafabréf á Strikið + GA buff
2.sæti: Skúli Gunnar Ágústsson, 75 högg (betri seinni 9) - 10.000kr gjafabréf á Rub23
3.sæti: Konráð Vestmann Þorsteinsson, 75 högg - Dúsin af Bridgestone e12 soft kúlum. 

Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín á skrifstofu GA á milli 8-16 alla virka daga