Haustmót GA á laugardag

Á laugardaginn næsta, 3. október verður golfmót á Jaðarsvelli í blíðskapar verði.

Í textalýsingu veður.is segir eftirfarand: 
Á laugardag: Suðlæg átt 3-8 og dálitlar skúrir, en lengst af þurrt norðanlands. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn, hlýjast á Norðausturlandi.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og höggleik án forgjafar.

Hámarksleikforgjöf leikmanna er 30 og kostar 3.500kr í mótið. 

Karlar leika af gulum teigum
Konur af rauðum teigum
Karlar 70+ af rauðum teigum
Drengir til 14 ára af rauðum teigum

Nú fer hver að vera síðastur að vinna verðlaun í golfmóti árið 2020 og hvetjum við kylfinga til að skrá sig strax til leiks en skráning fer fram á golfbox: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=2660055