Hatta- og pilsamót GA kvenna

Kæru golfgellur!

Það er stórafmæli framundan! Föstudaginn 26. júlí n.k. verður 30. Hatta- og pilsamótið haldið að Jaðri. Mótið er innanfélagsmót og er opið öllum félagskonum í GA og mæta allar í sínu fínasta pússi; kjól/pilsi og með hatt.  

Að þessu sinni verður 9 holu punktakeppni og verðlaun fyrir 1. – 3. sætið og jafnvel eitthvað fleira :)

Mæting er kl. 17:00 og verður ræst út af öllum teigum klukkan 17:30. Mótsgjaldið er 5.500 kr. og greiðist á staðnum í peningum (enginn posi). Innifalið í mótsgjaldinu er dýrindis veisluborð að hætti Jóns Vidalín. Skráning er á golf.is en einnig er hægt að hringja upp í golfskála til að láta skrá sig – síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 23. júlí. Ath. takmarkaður fjöldi, fyrstar skrá – fyrstar fá. Aðeins 48 golfgellur komast að í þetta skiptið!