Bændaglíma GA er á morgun, laugardag, og hefst golfið klukkan 13:00.
Bændur ársins eru þau Halla Sif, fyrrum framkvæmdarstýra GA, og eiginmaður hennar, Stefán Magnús Jónsson.
Það er ljóst að þau hjónin munu ekki gefa neitt eftir í baráttunni og verður spennandi að sjá hvort liðið fer með sigur úr býtum.
Stefán er bóndi rauða liðsins og Halla fer fyrir bláa liðinu. Þeir keppendur sem eru skráðir í mótið munu fá tölvupóst síðar í dag með liðunum og keppnisfyrirkomulagi og geta farið að finna sér flíkur í stíl við liðið.
Mótið endar síðan á hamborgaraveislu hjá Jaðar Bistro.