Gríðarlega vel heppnaður vinnudagur hjá GA

Í gær var vinnudagur á Jaðri þar sem um 60 sjálfboðaliðar mættu og tóku til hendinni hér á Jaðri og gæddu sér á dýrindis kjötsúpu hjá Jóni Vídalín.

Vel tókst að vinna þau verk sem þurfti og erum við hjá GA einstaklega ánægð með hjálpina sem við fengum og er útlit vallarins og skálans farið að líta mjög vel út.

Við viljum þakka þeim sem mættu í gær kærlega fyrir hjálpina.