Greiðsla árgjalda

Enn eru nokkrir meðlimir sem eiga eftir að greiða árgjöldin fyrir 2017 eða semja um greiðslur og biðjum við þá kylfinga um að hafa samband við Heimi framkvæmdarstjóra í síma 862-6352 eða á heimir@gagolf.is. Einnig er hægt að koma upp á skrifstofu upp á Jaðri á virkum dögum og semja um greiðslur.

Þann 1. maí verða þeir kylfingar sem ekki hafa greitt eða samið um greiðslu teknir út af golf.is og geta því ekk skráð sig á rástíma.

Völlurinn kemur vel undan vetri og trúum við því að golfsumarið 2017 verði magnað með þátttöku ykkar :)