Golfskóli GA 2026 eru golfnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára sem vilja læra grunntækni golfsins á skemmtilegan hátt.
Við hjá Golfklúbbi Akureyrar trúum því að besta leiðin til að kenna krökkum golf sé með skemmtilegum leikjum og leggjum mikið upp úr því að halda í gleðina.
Dagsetningar námskeiða 2026 eru eftirfarandi:
8.-12. júní
22.-26. júní
29. júní - 3. júlí
13. - 16. júlí (4 dagar)
20.-24. júlí
27.-31. júlí
Þátttakendum verður skipt í smærri hópa og hefur hver hópur sinn kennara.
Kennt er frá 10:00 - 12:30 alla dagana
Vikunni lýkur á pizzaveislu á föstudegi
Krakkar mæta klæddir eftir veðri og með nesti
Skráning fer fram á https://www.abler.io/shop/ga og er greitt fyrir námskeiðið þar.
Þegar barn hefur lokið einu námskeiði á vegum GA getur það mætt á skipulagðar æfingar samkvæmt æfingatöflu og gengur námskeiðsgjaldið upp í æfingagjald hjá GA.
Hlökkum til að taka á móti krökkunum í sumar.