Golfskálinn málaður

Þessa vikuna ætlum við að gera aðra tilraun til að mála golfskálann að Jaðri. Það liggur fyrir að mála glugga og útveggi golfskálans og biðlum við til klúbbmeðlima að rétta fram hjálparhönd. Stefnt er á að mála seinniparta vikunnar frá þriðjudegi til sunnudags. Einhver úrkoma er í kortunum en reynt verður að nýta hvert tækifæri til að mála vegg fyrir vegg.

Öll hjálp er vel þeginn, hvort sem það eru dagspartar eða einn klukkutími. Jón Vídalín heldur kaffikönnunni og grillinu heitu og boðið verður upp á hamborgara fyrir þá sem sjá sér fært að mæta og bleyta í pensli.

Þeir sem hafa áhuga og eiga möguleika á að aðstoða í vikunni mega endilega hafa sambandi við Steindór í síma 847-9000 eða senda á steindor@gagolf.is