Golfreglubreytingar - Leitartíminn

Nú voru teknar í notkun breytingar á golfreglum frá og með 1. janúar 2019 og munum við hjá GA kynna þær í stuttum dráttum á heimasíðu okkar næstu vikurnar. Dómaranefnd GSÍ hefur sett saman fréttaskot sem verða birt á golf.is og munum við hjá GA birta þær einnig á heimasíðu okkar fyrir félagsmenn okkar svo þeir fái að kynnast breyttum reglum með einföldum hætti. Þegar fer að vora munum við síðan vera með námskeið á Jaðri í golfreglum og kynna breytingar enn frekar fyrir félagsmönnum okkar. 

Leitartíminn er nú þrjár mínútur:

Fréttaskot frá dómaranefnd GSÍ þar sem fjallað er um breytingarnar á golfreglunum.

Nú hefurðu þrjár mínútur til að leita að bolta þínum. Ef boltinn hefur ekki fundist innan þriggja mínútna frá því þú eða kylfuberi þinn hófuð leit að honum er boltinn týndur og þú verður að taka fjarlægðarvíti.

Ef boltinn finnst eftir að þriggja mínútna leitartíminn er liðinn telst boltinn samt týndur og þú mátt alls ekki leika honum. Mikilvægt er að kylfingar temji sér að taka tímann þegar leit hefst.

Tilgangur þessarar breytingar er fyrst og fremst að flýta leik. Reynslan sýnir að flestir bolta sem finnast á annað borð finnast innan þriggja mínútna. Þótt týndum boltum muni fjölga eitthvað við breytinguna er talið að leikhraði muni almennt aukast.

Kylfingar ættu almennt að temja sér að leika varabolta ef upphaflegi bolti kann að vera út af eða týndur utan vítasvæðis.

 Frétt golf.is : https://golf.is/golfreglur-2019-leitartiminn-er-nu-thrjar-minutur/