Þá eru golfnámskeiðin okkar komin í sölu inn á Abler en hægt er að skrá sig í þau hér: https://www.abler.io/shop/ga
Við munum eins og undanfarin ár bjóða upp á tvenns konar námskeið. Annars vegar er það sex skipti, stóra golfnámskeiðið, þar sem innifalin er sumaraðild á Dúddisen, sex holu æfingavöll GA, og hins vegar minna námskeiðið þar sem kennt er í fjögur skipti.
Við hvetjum alla nýliða hjá okkur sem og kylfinga sem vilja fínpússa leik sinn og eru að stíga sín fyrstu skref í sportinu til að sækja þessi námskeið en þau verða undir handleiðslu PGA golfkennara en þau Arna Rún Oddsdóttir, Friðrik Gunnarsson og Víðir Steinar Tómasson skipta á milli sín námskeiðunum.
Aðeins er pláss fyrir átta kylfinga á hvert námskeið og því um að gera að hafa hraðar hendur við skráningu.
Sjáumst í golfi í sumar.