Golfmót á laugardaginn

Það er frábær veðurspá fyrir laugardaginn, 11 stiga hiti, sól og blíða og ætlum við því að halda golfmót.

Ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 10:00.  Skráning fer fram á golf.is og er sú skráning eingöngu til þess að raða í holl.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik.

Nándarverðlaun á 18. braut.

Hlökkum til að sjá ykkur