Golfmót á Jaðri á morgun

Golfmót á morgun á Jaðri. 9 holu mót og spilað á sumarflatir!

Það er ágætis veðurspá fyrir morgundaginn og því ætlum við að halda golfmót. Flatirnar líta virkilega vel út og ætlum við því að spila á þær á morgun.

Þar sem við spilum bara 9 holur, og einnig vegna birtuskilyrða þá komast einungis 52 að í mótið.

Það er búið að opna fyrir skráningu á golf.is

Er þetta í fyrsta sinn sem haldið er golfmót hér í nóvember og leikið er á sumarflatir, (við vitum alla vega ekki betur :))

Mótsgjald er 2000 krónur og rennur það óskipt í unglingastarfið okkar.

Jón Vídalín verður með heitt á könnunni og eitthvað nýbakað með

Hlökkum til að sjá ykkur