Félagsmenn okkar ættu að þekkja GolfMore forritið en í fyrra var það notað á æfingasvæðinu okkar en þar gátu meðlimir okkar og aðrir gestir sótt sér forrit og verslað golfkúlur á æfingasvæðið í því. Í vetur var nafninu breytt úr GolfMore í GolfNext og hvetjum við alla félagsmenn okkar til að sækja sér það fyrir sumarið.
Þá er best fyrir þá sem eru að sækja sér forritið að skrá sig inn með Golfbox ID-inu sínu en þannig fá þeir GA kjör á boltana. Hægt er að versla áfyllingu í forritinu sjálfu ef inneignin er tóm og hafa allir félagsmenn okkar nú þegar fengið Birdie áfyllingu inn á sinn aðgang og geta nýtt sér það.
Æfingasvæðið, Klappir, opna í dag klukkan 14:00 og hvetjum við að sjálfsögðu sem flesta til að koma og nýta sér það, muna eftir Trackman forritinu líka en með því að nota það getur kylfingurinn fylgst betur með öllum sínum höggum og haldið utan um tölfræði hverrar kylfu.
Starfsmenn okkar í golfbúðinni geta aðstoðað kylfinga við að ná sér í þessi forrit og setja þau upp en með þeim einfaldast golfleikurinn til muna :)
Hlökkum til að sjá ykkur á Klöppum.