Golfklúbbur Akureyrar fyrirmyndarfélag ÍSÍ síðan 2006

Frá vinstrí: Heiðar Davíð Bragason golfkennari GA, Skúli Eyjólfsson stjórnarmaður í GA, Steindór Kr.…
Frá vinstrí: Heiðar Davíð Bragason golfkennari GA, Skúli Eyjólfsson stjórnarmaður í GA, Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri GA, Viðar Sigurjónsson fulltrúi ÍSÍ, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir golfkennari GA. Aftari röð: Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður ÍBA, Jón Heiðar Sigurðsson skrifstofustjóri GA og Lárus Ingi Antonsson kylfingur GA

Í dag fékk Golfklúbbur Akureyrar afhent viðurkenningarskjal vegna endurnýjunnar sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. 

Viðar Sigurjónsson afhenti skjalið fyrir hönd ÍSÍ og tók Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri GA við skjalinu. Athöfnin fór fram í blíðskaparveðri á 18. flötinni í dag. GA hefur borið þessa viðurkenningu síðan 2006 með stolti.

 

"Það er okkur dýrmætt að hafa endurnýjað þá viðurkenningu að GA sé Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.  GA leggur mikið upp úr faglegu og góðu starfi, það að GA sé Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er afar mikilvægt og hjálpar okkar starfsemi" sagði Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri GA af þessu tilefni.