Golfæfingar um helgina með Birgi Leif Hafþórssyni

Nú um helgina ætlar hann Birgir Leifur Hafþórsson að koma í heimsókn til okkar í Golfhöllina.

Hann verður með æfingar fyrir krakkana okkar og einnig ætlar hann að vera með opinn tíma fyrir félaga í GA.  Þar ætlar hann að vera með skemmtilega stöðvaþjálfun og er þetta því kjörið tækifæri til þess að fá leiðbeiningar frá okkur allra besta kylfing.

Dagskrá helgarinnar verður sem hér segir:


Laugardagur 14 febrúar:
 9:00 – 11:00. Opin æfing hjá Birgi Leif fyrir félaga í GA.

Birgir Leifur verður á svæðinu með léttar æfingar fyrir GA félaga og leiðbeinir kylfingum

11:00 – 14:00.  Golfæfing hjá GA krökkum.

Sunnudagur 15. Febrúar.

 9:00 – 11:00.  Norðurlandsúrvalið á æfingu.  

11:00 – 13:00.  Golfæfing hjá GA krökkum.

Vonandi mæta sem flestir og nýta þetta góða tækifæri :)

Golfhöllin verður opin á meðan á þessum æfingum stendur.  Það verður þó þannig að þeir sem eru á æfingum hafa forgang og gætu þurft að nýta alla okkar aðstöðu og biðjum við ykkur að taka tillit til þess.

Hlökkum til að sjá ykkur!