Golfæfingar í febrúar og mars

Nú hefur Brian Jensen hætt störfum hjá okkur og nýr kennari, Sturla Höskuldsson ekki væntanlegur fyrr en 1. apríl.

Við höfum fengið Árna Jónsson og Friðrik Gunnarsson til að sjá um æfingar þessa tvö mánuði og svo munu Tumi Kúld og Stefán Einar sjá um æfingarnar hjá byrjendaflokknum.

Sú breyting sem mun eiga sér stað er sú að nú eiga allir hópar bókaðan tíma einu sinni í viku í Trackman, þar er hægt að skella sér á æfingasvæðið eða spila nokkrar holur undir handleiðslu kennara.

Búið er að uppfæra stundatöfluna og þar getið þið séð hvenær þið eigið tíma í Trackman.