Glæsilegu afmælismóti og afmæliskaffi lokið

Fannar slær upphafshögg á 16. í dag
Fannar slær upphafshögg á 16. í dag

Alls tóku 108 manns þátt í Afmælismóti GA sem haldið var í dag. Ræst var út af öllum teigum í morgun klukkan 10:00 og sáust mögnuð tilþrif út á velli. 

Nándarverðlaun voru veitt á öllum par þrjú holum vallarins, verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og svo efsta sætið í höggleik. 

4.hola: Bjarni Þórhallsson 1,44 m 

8.hola: Reimar 2,85 m

11.hola: Fannar Már 2,25 m 

14.hola: Jón Hansen 1,24 

18.hola: Stefanía Elsa HOLA Í HÖGGI 


Punktakeppni:

1.sæti:    Jón Steindór Árnason 41.punktur  

2.sæti: Rósa Jónsdóttir 39 punktur 

3.sæti: Jón Birgir Guðmundsson 38 punktur (21 seinni 9)


Höggleikur:

Fannar Már Jóhannsson 68 högg. - Fannar spilaði frábært golf í dag, fékk 9 pör, 6 birdie og 3 boogie. 

Að loknu mótinu var slegið upp í heljarinnar veislu hér í klúbbhúsinu þar sem GA félagar og gestir gæddu sér að veitingum og fluttu menn tölu. 

Svo sannarlega frábær dagur hjá okkur í GA í dag og þökkum við öllum þeim sem nutu hans með okkur kærlega fyrir skemmtunina.