GA óskar eftir fólki í ferðanefnd

120 GA félagar fóru til Morgado í Portúgal 2016
120 GA félagar fóru til Morgado í Portúgal 2016

Við hjá GA óskum eftir félögum sem tilbúnir eru að koma í ferðanefnd og aðstoða þar við skipuleggingu á utanlandsferð fyrir GA félaga.

Tilvalin leið að lengja golfsumarið er að fara erlendis og spila golf í góðum félagsskap og höfum við hjá GA til að mynda farið saman í afmælisferð til Islantilla vorið 2015 og til Morgado í Portúgal vorið 2016. Báðar þessar ferðir heppnuðust gríðarlega vel og er hugur í mörgum félögum að fara í ferð 2019 og viljum við því fá ykkar hjálp við skipulagningu og mega áhugasamir hafa samband við Jón Heiðar á jonheidar@gagolf.is eða í síma 823-8750.

Þetta er tilvalið tækifæri fyrir ykkur að láta rödd ykkar heyrast og taka þátt í skemmtilegu verkefni með skemmtilegu fólki :)