GA og Slippfélagið endurnýja samning sín á milli

Á dögunum var skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning á milli GA og Slippfélagsins. 

Þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir okkur hjá GA en Slippfélagið hefur verið gríðarlega góður styrktaraðili hjá okkur í GA undanfarin ár og hjálpað okkur með málningu innan og utan á skálanum.

Við hjá GA þökkum Slippfélaginu kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs með þeim á næstu árum. 

Þá bendum við GA félögum á heimasíðu Slippfélagsins https://slippfelagid.is/ en þar má finna allt það helsta sem þarf fyrir málningarvinnuna.