GA og Nettó áfram í samstarfi

Gæða vörur á góðu verði
Gæða vörur á góðu verði

Nú á dögunum skrifuðu GA og Nettó undir áframhaldandi samstarf þeirra á milli. Það voru þeir Steindór Kristinn framkvæmdarstjóri GA og Gísli Tryggvi Gíslason verslunarstjóri Nettó á Akureyri sem skrifuðu undir samninginn.

Nettó hefur verið styrktaraðili GA undanfarin ár og er það okkur mikill happafengur að svo verði áfram.

Við hjá GA þökkum Nettó kærlega fyrir samstarfið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Gísli og Steindór

Gísli og Steindór við undirskrift samningsins.