GA og Landsbankinn í áframhaldandi samstarf

Nú á dögunum undirrituðu Golfklúbbur Akureyrar og Landsbankinn undir áframhaldandi samstarf en Landsbankinn hefur undanfarin ár verið einn af okkar sterkustu samstarfsaðilum. Það voru þeir Arnar Páll Guðmundsson útibústjóri hjá Landsbankanum og Bjarni Þórhallsson formaður GA sem undirrituðu samninginn.

Við hjá GA erum gríðarlega ánægð með stuðninginn frá Landsbankann og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. 

Arnar Páll og Bjarni við undirritun

Arnar Páll og Bjarni við undirritun