GA og Golfskálinn í samstarf

Nú í vikunni skrifuðu Golfklúbbur Akureyrar og Golfskálinn undir samstarfssamning um rekstur golfbúðarinnar á Jaðri.

Við munum því selja vörur frá Golfskálanum í okkar Golfbúð og verðum með öll helstu merkin í golfinu á góðu verði.

Samstarf GA og Golfskálans hófst í fyrra þegar Golfskálinn kom inn sem aðalstyrktaraðili Hjóna og parakeppninni okkar, það samstarf mun að sjálfsögðu halda áfram og munum við bæta aðeins í með demodögum ásamt ýmsu öðru.

Hlökkum við til samstarfsins og bjóðum Golfskálann velkominn á Jaðar.