GA eru með 8 leikmenn sem keppa á Íslandsmótinu í holukeppni í ár og fer mótið fram dagana 19.-21. júní. Keppt er í karla- og kvennaflokki og er mótið haldið á tveimur völlum að þessu sinni. Karlakeppnin fer fram á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og kvennakeppnin á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.
Keppt var í 36 holu höggleik þar sem efstu 16 keppendur komast áfram í 16 manna úrslit. Þrír keppendur frá GA komuist áfram í 16 manna úrslit; þau Veigar Heiðarsson, Hafsteinn Thor Guðmundsson og Andrea Ýr Ásmundsdóttir.
Á morgun verða leikin 16 manna úrslit og 8 manna úrslit. Veigar mætir Magnúsi Yngva Sigsteinssyni kl. 09:17. Hafsteinn Thor leikur gegn Aroni Emil Gunnarssyni kl. 08:22 og Andrea Ýr mætir Fjólu Margréti Viðarsdóttur kl 09:00.
Hægt er að fylgjast með stöðunni og rástímum hér
Karlar: https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/5436664/matchplay
Konur: https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/5436662/teetimes