GA konur með sterkan sigur

Konurnar okkar áttu góðan leik í gær þegar þær sigruðu GKB 3-2. Hall Sif og Jakobína sigruðu fjórmenningin 1/0, Unnur Elva vann 1/0 og Dóra Kristín sigraði á 19.holu. Þær Anna Einars á 19. holu og Þórunn Anna töpuðu sínum leikjum. Í dag eiga þær leik á móti GS um áframhaldandi sæti í efstu deild, sigri þær hann halda þær sér uppi ef önnur úrslit verða hagstæð. 

Við  sendum góða strauma héðan frá Akureyri og óskum þeim góðs gengis.