GA ferð til Islantilla

Ágætu GA félagar.

Enn eru laus sæti í ferðina sem farin verður í apríl næstkomandi.

Hér að neðan eru upplýsingar um ferðina:

Flogið verður þann 02. apríl frá Kef kl. 08.30 og lent í Faro kl. 13.40 að staðatíma. Flugið heim þann 11. apríl frá Faro er kl. 12.40 og lent 16.50 í Keflavík.

 

Verð á mann í tvíbýli fyrir æfingahópinn:

189,900 kr.    

 

Verð á mann fyrir foreldra og aðra:

í tvíbýli - 209,900 kr. (með golfbíl allan tímann, ótakmarkað golf) án golfs 160,900 kr

í jr. svítu - 226,900 kr. án golfs 177,900 kr

einbýli: 229,900 án golfs 171,900 kr

 

Innifallið fyrir æfingahópinn: Beint flug með Icelandair, flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting með fullu fæði, ótakmarkað golf með golfkerru, ótakmarkað magn af æfingaboltum og fararstjóri frá VITAgolf.

Innifalið fyrir foreldra og aðra:  Sama og hér fyrir ofan ásamt golfbíl fyrir ótakmarkað golf allan tímann. Ekki innifalið er hádegismatur og æfingaboltar.

 

ATH:

1) Hádegisverður fyrir æfingahópinn er létt hlaðborð í veitingasal hótelsins.

2) Vildapunktar eru ekki í boði fyrir þessa ferð og ekki hægt að nota punkta til að greiða fyrir ferðina.

 

Þeir sem hafa áhuga á því að fara með geta haft samband við Ágúst í síma 8577009 eða á agust@gagolf.is.