Nýjung! GA félagar spila frítt á Siglufirði og Dalvík í sumar

Við hjá GA erum gríðarlega ánægðir með að tilkynna okkar félagsmönnum að sumarið 2026 munu þeir fá að spila Sigló Golf og Arnarholtsvöll á Dalvík frítt. 

GA félagar geta bókað sig á golfbox á báða þessa velli og þurfa ekki að greiða fyrir spilaðan hring. Við biðjum félagsmenn okkar um að virða þær reglur sem eru settar á þessa velli varðandi skráningu og afskrá sig af teig ef þeir sjá sér ekki fært um að nýta pantaðan rástíma. 

Við vonum að okkar félagar verði duglegir að nýta sér þessa nágrannavelli okkar en báðir eru þeir gríðarlega skemmtilegir 9 holu vellir og er um að gera að kíkja í stuttan bíltúr og prufa í sumar. 

Heimasíða GHD