GA félagar duglegir að slá "draumahöggið"

GA félagi okkar Magnús V. Magnússon fór holu í höggi

Hann sló draumahöggið á 8.braut Hólmsvallar í Leiru, sunnudaginn 16. september s.l. Magnús notaði fleygjárn við draumahöggið en þeir félagarnir misstu af flugi boltans sem þó stefndi allan tímann á pinnann.

Þeir leituðu því dágóða stund að boltanum þar til þeir uppgötvuðu hann í holunni.

Þetta er í annað sinn sem Magnús fer holu í höggi.

Til hamingju Magnús

Heimild: Heimasíða GS www.gs.is