GA deildin verður haldin með pompi og prakt í sumar!

Þáttökugjaldið rennur óspart til Kvenna og Karla sveita GA en GA deildin er liður í fjáröflun sveita…
Þáttökugjaldið rennur óspart til Kvenna og Karla sveita GA en GA deildin er liður í fjáröflun sveitanna á Íslandsmót Golfklúbba.

Nú fer að styttast í golf sumarið sem þýðir að GA deildin 2021 er loksins að hefjast. Því hvetjum við kylfinga til að safna í lið sem fyrst og skrá sig! Skráningarfrestur er til kl. 23:59 föstudaginn 21. maí og fyrsta umferð hefst stuttu eftir það.

Það ætti enginn að láta þetta frábæra mót fram hjá sér fara en vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu 3 sætin að móti loknu.

 

Leikfyrirkomulagið er eftirfarandi:

•Lágmarks fjöldi leikmanna í liði eru fjórir en hámarks fjöldi er átta. 

•Í deildinni er leikin holukeppni í svipaðri fyrirmynd og á Íslandsmóti Golfklúbba nema leikið verður með forgjöf í liðakeppni GA. 

•Hámarksleikforgjöf er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur.

•Hámarks fjöldi liða í mótið eru 16 en fjórir liðsmenn keppa í hverri umferð.

•Verð fyrir hvern leikmann er 5.000kr

 

Skráning í mótið fer fram á netfang jonheidar@gagolf.is eða skrifstofa@gagolf.is þar sem skila þarf inn nöfnum fullskipaðs liðs í skráningunni auk staðfestingar á greiðslu. 

Þáttökugjaldið þarf að vera greitt fyrir fyrstu umferð deildarinnar inn á reikning 0162-05-200004 kt.580169-7169

Það sem þarf að koma fram við skráningu er:

  • Nafn liðs
  • Upplýsingar um leikmenn
  1. Fullt nafn
  2. Aðildarnúmer
  3. Nafn liðs
  4. Netfang og símanúmer liðsstjóra

 

Mótsstjóri keppninnar er Eyþór Hrafnar sími: 8479108 og Stefanía Kristín sími: 8587462

Þáttökugjaldið rennur óspart til Kvenna og Karla sveita GA en GA deildin er liður í fjáröflun sveitanna á Íslandsmót Golfklúbba.