Fyrsta mót sumarsins - Peng's open

Næstkomandi laugardag fer fram fyrsta mót sumarsins. Völlurinn er að verða kominn í gott stand og verður mótið spilað inná allar flatir. 

Fyrirkomulagið er höggleikur með og án forgjafar en glæsileg verðlaun verða veitt fyrir:

1.sæti - 20.000 kr. gjafakort á Pengs í báðum flokkum
2.sæti - 15.000 kr. gjafakort á Pengs í báðum flokkum
3.sæti - 10.000 kr. gjafakort á Pengs í báðum flokkum

Nándarverðlaun eru á öllum par 3 holum - Gjafabréf frá Pengs

Dregin út í mótslok 5 gjafabréf í mat í hádeginu fyrir 2 á Pengs.

Verðlaun fyrir holu í höggi - Beint flug á Tallinn í Eistlandi með hóteli frá 25.-29.september 2013 fyrir einn.

Rástíma frá kl. 9:00-13:00.

Mótsgjald kr. 4.000.-