Fyrsta kvennaspil sumarsins, mánudaginn 7. júní

Kvennaspil, kvennaspil, kvennaspil.
Þá er golfsumarið að hefjast hjá okkur golfgellunum. Annað árið í röð er byrjun golfsumarsins frekar óhefðbundin hjá okkur. Vorfundinn var ekki hægt að halda í apríl og því ætlum við að slá saman fyrsta kvennaspili sumarsins og súpukvöldi og verður það mánudaginn 7. júní.
Mæting í spilið er kl. 16:30 og við reiknum með að byrja að spila kl. 16:45. Nefndin raðar í holl, vön og óvön eftir því sem hægt er.

Leikfyrirkomulag dagsins verður Greensome. Hvað er greensome? Tveir leikmenn leika saman í liði. Báðir slá af teig og velja síðan betra teighöggið. Eftir það er slegið til skiptis, sá sem átti teighöggið sem var ekki valið slær þá annað höggið og svo koll af kolli þangað til leikmenn klára holuna.

Eftir spilið, c.a. kl. 19:30/20:00, ætlum við svo að gæða okkur á dýrindis kjúklingasúpu og brauði að hætti Jóns Vídalín. Yfir borðum munum við fara yfir starfið í sumar og skipta um stjórn í kvennanefndinni.

Verð fyrir spilið er kr. 1.000 og kr. 2.500 fyrir súpuna, hægt að koma í annað eða bæði – viljum þó endilega fá ykkur í bæði. Við viljum biðja ykkur að skrá ykkur hér fyrir neðan í síðasta lagi fimmtudaginn 3. júní upp á fjöldann í súpuna. Gott að fá skráningu í spilið líka svona upp á skipulagið en ekkert mál þó það verði ekki fyrr en á mánudeginum.

Við minnum konur einnig á Facebook síðu hópsins https://www.facebook.com/groups/182958925098157