Fullkomið kylfuverkstæði opnar á Jaðri

Nú er Sturla golfkennari búinn að koma sér vel fyrir upp á Jaðri og mun hann bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu í öllu sem viðkemur kylfuviðgerðum ásamt ýmsu öðru.

GA félagar þurfa því ekki að leita langt þegar kemur að lagfæringum á kylfum, skipta um grip og þess háttar.

Verkstæðið er staðsett á skrifstofunni við hliðina á golfverlsluninni.

Allar nánari upplýsingar veitir Sturla í síma 8684785