Full búð af vörum - TILBOÐ af pokum

Golfbúðin okkar að Jaðri er full af frábærum golfvörum, úrvalið er til fyrirmyndar og má segja að allir geti fundið eitthvað fyrir sig. 

Við erum með flott úrval af fötum, pokum kylfum, skóm og húfum.

Einnig eigum við flestar tegundir af boltum, GA merktar húfur og handklæði.

Á morgun verður glæsilegt tilboð af öllum Ping og Titleist pokum, bæði burðarpokum og kerrupokum. 20% afsláttur er af verðinu í búðinni og hvetjum við þá sem vantar poka að nýta sér þetta stórgóða tilboð.