Frí TrackMan kennsla fyrir félagsmenn á föstudaginn

Á föstudaginn næsta, milli 13 og 14, ætla Heiðar Davíð og Jón Heiðar að vera í Golfhöllinni og fara yfir með félagsmönnum okkar hvernig TrackMan forritið virkar.

Farið verður yfir æfingasvæðið, uppsetningu á því að spila velli, trackman appið og hvernig maður býr sér til aðgang í TrackMan þar sem hægt er að fylgjast með allri tölfræði sinni. 

Hægt er að koma á þessum tíma og fá smá kennslu frá Heiðari og Jóni og er tilvalið fyrir golfþyrsta kylfinga sem nýta sér hermana að líta við.