Það er nóg um að vera á Jaðri þessa dagana og vinnum við hörðum höndum að því að gera völlinn og allt nærumhverfið okkar klárt til að taka á móti golfurum sumarsins þegar við opnum Jaðarsvöll.
Snjókoma og kuldaspá hefur dregið opnun vallarins aðeins á langinn en vonumst við til að ná að opna einhverjar holur í næstu viku ef allt gengur að óskum.
Vinnudagur verður svo auglýstur þegar meiri bjartsýni kemur fram í langtímaspá ásamt opnun vallarins þegar hún liggur fyrir og hvetjum við félagsmenn okkar til að fjölmenna á vinnudaginn og hjálpa okkur við að undirbúa völlinn
Þá er 50% afsláttur af tímum í golfhermum GA út maí - tilvalið að taka nokrka hringi á Jaðarsvelli inni í blíðunni áður en við höldum út á völl. Athugið að tilboðið gildir einungis af stökum tímum en ekki 10skipta kortum.
Golfverslun okkar er síðan opin alla daga vikunnar og erum við með gott úrval af fatnaði, kylfum, golfpokum, kerrum og öllu því sem þið þurfið í golfið. Við erum alltaf að bæta í búðina og koma alltaf reglulega nýjar og spennandi vörur.
Dúkalagning á flatir gekk vel í byrjun maí og hefur varið þær fyrir snjó og kulda síðustu vikurnar og líta því flatirnar okkar vel út.
Þá hafa sjálfboðaliðarnir okkar unnið hörðum höndum að uppbyggingu á nýjum sólpalli sunnan við nýju golfbúðina og verður svo sannarlega slegist um sætin þar í sumar í þeim mikla sælureit sem mun myndast þar í sólinni. Hellulögn fyrir framan golfbúðina er hafin og er stefnan að ljúka henni fyrir opnun.

Umferð á Klappir fyrstu vikurnar frá opnun hefur verið góð og hafa allir félagsmenn okkar fengið sent birdiekort í GolfNext appið sitt sem fylgir með árgjaldi. Við hvetjum síðan gesti á Klöppum til að skrá sig inn á Trackman aðganginn sinn til að halda betur utan um öll golfhöggin sín. Með tilkomu Trackmam Range í fyrra varð öll aðstaðan á Klöppum enn betri og geta kylfingar nú fylgst með flugi boltans, séð lengdir og spilað velli eins og þeir gera í golfhermum okkar innandyra. Mikil vinna fer fram við að halda æfingasvæðinu opnu svo sómi sé af, hafa það snyrtilegt ásamt því að koma boltunum aftur í hús. Biðlum við til notenda æfingasvæðisins að bera virðingu fyrir aðstöðunni og huga að því að slá boltana innan svæðis en ekki útaf því, inn í skóginn ofl. .
Þá byrjaði Jaðar Bistro með stórglæsilegt hádegishlaðborð í síðustu viku en hlaðborðið er alla virka daga frá 11:30 - 13:30 og kostar skiptið 3.490kr en einnig er hægt að kaupa 10 skipta kort á 29.900kr - nánar um hlaðborðið og vikumatseðil má finna á facebook síðu Jaðar Bistro
Þá eru golfnámskeiðin okkar farin af stað, fyrstu fullorðinsnámskeiðin hófust í síðustu viku og fara svo barnanámskeiðin af stað 9. júní. Nánari upplýsingar um námskeiðin okkar er að finna á Abler