Fréttir af Lundsvelli

Séð ofaní eina flötina á Lundsvelli
Séð ofaní eina flötina á Lundsvelli

Síðastliðin föstudag var tekin staðan á flötunum á Lundsvelli og er óhætt að segja að staðan sé virkilega góð.

Það er snjór og klaki yfir öllum vellinum en þegar klakinn var brotinn og staðan tekin á nokkrum flötum kom í ljós iðagrænt og fallegt gras og yndisleg graslykt :)

Það ríkir því mikil bjartsýni fyrir komandi sumar á Lundsvelli.

Síðastliðið haust var viðhaldi aðeins breytt frá því sem verið hefur og voru flatirnar ekki slegnar eftir ca. 5 september og fóru þær því frekar loðnar inn í veturinn auk þess sem þær voru gataðar og áburður borinn á seint inn í haustið.  Eru þær aðgerðir vonandi að skila góðum árangri.