Fréttir af framkvæmdum

Verið er að hreinsa jarðveg upp úr læk sem gengur í gegnum 2. og 3. braut og setja í hann möl er þetta gert til að fegra lækinn og til að kylfingar finni auðveldlega boltann sinn ef þeir eru svo óheppnir að fara í lækinn.

Á næstu dögum hefjast svo framkvæmdir við lagnaskurð fráveitu- og heitavatnslagnar. Ennfremur verður komið fyrir nýrri kaldavatnslögn og ljósleiðara.