Framkvæmdir á æfingasvæðinu

Starfsmenn Golfklúbbsins hefja á morgun, miðvikudag, framkvæmdir á æfingasvæðinu. Um er að ræða jarðvegsskipti og lagningu gervigrass á svæðinu milli 100 og 150 metra skiltanna.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umhirðu og viðhald svæðisins til framtíðar, auk þess að auðvelda týnslu golfbolta og umgengni, sérstaklega yfir vor- og haustmánuðina þegar aðstæður geta verið krefjandi.

Til að tryggja öryggi og veita starfsfólki nauðsynlegan vinnufrið verður æfingasvæðið lokað daglega á milli kl. 08:00 og 16:00 meðan á framkvæmdum stendur. Að þeim tíma loknum verður svæðið opið fyrir notkun eins og venjulega.

Áætlað er að framkvæmdin taki um tvær vikur. Við munum upplýsa félagsmenn og gesti þegar æfingasvæðið verður opnað að fullu á ný.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn og samstarfið.