Framkvæmdastjóri GA segir starfi sínu lausu

Halla Sif og Stefán á góðri stund
Halla Sif og Stefán á góðri stund

Halla Sif, framkvæmdastjóri GA, hefur óskað eftir því við stjórn klúbbsins að láta af störfum til að takast á við ný verkefni. Stjórn hefur orðið við þessari ósk, en jafnframt varð að samkomulagi að Halla vinni uppsagnarfrest og ljúki við uppgjör á núverandi starfsári í október/nóvember nk.

Halla Sif hefur verið framkvæmdastjóri GA síðastliðin sjö ár.  Hefur samstarf Höllu við stjórn og starfsfólk verið með miklum ágætum og eru henni þökkuð góð störf á miklum framkvæmdatímum. 

Auglýst verður eftir framkvæmdastjóra fljótlega.