Framkvæmdastjóri GA

Viðbrögð við auglýsingu um starf framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar voru afar góð.  Margir mjög hæfir einstaklingar sóttu um starfið.

Stjórn GA hefur gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra.  Framkvæmdastjóri verður kynntur formlega um miðja næstu viku.