Framboð til stjórnar GA og annarra nefndarstarfa

Athygli félagsmanna er vakin á því að á komandi aðalfundi skal kjósa formann til eins árs, tvo stjórnarmenn af fjórum til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Stefnt er að halda aðalfund 14. desember og verður hann auglýstur með að lágmarki viku fyrirvara. 

Einnig sækjumst eftir að fá duglega meðlimi kúbbsins í nefndir klúbbsins. 

Þeir sem vilja gefa kost á sér skulu samkvæmt samþykktum félagsins senda upplýsingar þar um til kjörnefndar á netfangið gagolf@gagolf.is og taka fram hvort framboðið sé til formanns, stjórnar, varastjórnar eða í aðrar nefndir.

Við hvetjum félagsmenn sem hafa áhuga á stjórnarstarfi eða nefndarstörfum að gefa kost á sér og skila inn umsókn. Við tökum vel á móti nýju fólki og viljum öll vinna að sama markmiði, að gera GA að stærri og betri golfklúbbi.

Kjörnefnd.