Frábærlega mætt á reglukvöld á Jaðri

Það var margt um manninn á reglukvöldi GA sem fór fram á Jaðri í gærkvöldi.

Tryggvi Jóhannsson mætti og stýrði því af stakri snilld en rúmlega 80 kylfingar voru mættir og fúsir að læra nýjar reglur og reglubreytingar sem hafa orðið í golfinu. 

Við hjá GA þökkum Tryggva kærlega fyrir að sjá um þennan fyrirlestur og hjálpa okkur að kynna reglurnar fyrir félagsmönnum okkar.