Frábær lokahringur hjá Veigari og ETSU vinnur annað mótið í röð

Veigar Heiðarsson og félagar hans í ETSU skólanum hafa heldur betur byrjað skólaárið af krafti og unnu sitt annað mót í röð í gær þegar þeir unnu upp fimm högga mun á lokadeginum. Skólinn hefur tekið þátt í þremur mótum í haust, unnið tvö þeirra og lent í öðru sæti á einu þeirra.

Veigar okkar lék best allra kylfinga í ETSU á lokadeginum en hann fékk sex fugla og tólf pör og endaði jafn í 8. sæti í einstaklingskeppninni á samtals sex höggum undir pari. Veigar hefur farið gríðarlega vel af stað á sínu öðru ári fyrir skólann. Hann lenti í 12. sæti á fyrsta mótinu, 3. sæti á öðru móti og í 8. sæti á þessu móti.

Virkilega gaman að fylgjast með Veigari og hans félögum en næsta mót hjá þeim hefst 19. október.

Hér má sjá lokaniðurstöðu mótsins