Formannafundur GSÍ var haldinn á Jaðri

Formannafundur GSÍ var haldinn á Jaðri þann 7. nóvember síðastliðinn. 

Vel var mætt til fundar og voru eins og venjan er ýmsar viðurkenningar veittar fyrir mikilvægt framlag til golfhreyfingarinnar. 

Golfklúbbur Akureyrar hlaut Sjálfbærniverðlaun GSÍ og Akureyrarbær hlaut heiðursskjal sambandsins ásamt því að Steindór Kristinn fékk silfurmerki GSÍ. 

Heiðursskjal GSÍ er veitt sveitarfélagi sem hefur skarað fram úr með stuðningi sínum við golfhreyfingu á Íslandi. Akureyrarbær hefur átt í farsælu samstarfi við GA undanfarna áratugi og hefur með markvissri stefnu og fjárfestingum skapað aðstæður sem styðja við golfiðkun fólks á öllum aldri. 

Sjálfbærniverðlaun eru veitt klúbbi sem sýnir metnaðarfulla og ábyrga nálgun í rekstri, vallarumhirðu, félagsstarfi og uppbyggingu íþróttarinnar. GA hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi í sjálfbærnistarfi golfhreyfingarinnar, tekið þátt í gagnaverkefnum GSÍ og hlotið GEO-vottun sem staðfestir ábyrga starfshætti samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Meðal þess sem lagt var til grundvallar viðurkenningarinnar voru umbætur í vallarumhirðu á Jaðarsvelli. Notkun slátturróbóta hefur bætt gæði sláttar, dregið úr eldsneytisnotkun og minnkað hávaða og losun. Uppistöðulón fyrir vökvun stuðlar að ábyrgri vatnsnotkun og endurnýting véla og aðfanga er hluti af daglegum rekstri klúbbsins. 

Þá hlaut Steindór Kristinn, framkvæmdarstjóri GA, silfurmerki GSÍ á fundinum. Steindór hefur verið framkvæmdarstjóri GA síðan 2018 og vallarstjóri klúbbsins til margra ára. Hann er formaður SÍGÍ, Samtaka íþrótta- og golfvallarstarfsmanna á Íslandi, og hefur verið öflugur talsmaður fagmennsku í umhirðu golfvalla. Framlag hans hefur þannig nýst bæði við uppbyggingu á Jaðri og í samstarfi og miðlun þekkingar meðal vallarstarfsmanna segir í frétt GSÍ. 

Við hjá GA þökkum GSÍ fyrir komuna sem og gestum fundarins og er virkilega gaman að fá að halda formannafundinn á Akureyri og taka á móti fólki úr golfhreyfingunni í okkar frábæru aðstöðu.