Forgjafarleiðrétting

62% kylfinga GA er með óbreytta forgjöf.

Forgjafarnefndir golfklúbba landsins hafa nú farið yfir forgjöf kylfinga og athugað hvort að breyta þurfi forgjöfinni eftir síðasta sumar.

Árleg endurskoðun forgjafar hjá GA hefur farið fram og voru þær breytingar sem kerfið lagði til samþykktar í forgjafarnefnd.

 Við viljum minna kylfinga á að skoða forgjöfina sína og ef þeir hafa einhverjar athugasemdir við þær breytingar sem gerðar voru að hafa samband við forgjafarnefnd og við skoðum málið.

Breytingarnar voru á þann veg að 31% kylfinga voru lækkaðir í fgj., 7% hækkaðir en óbreytt hjá 62%. Einnig viljum við minna þá kylfinga á sem eru með óvirka forgjöf að skila inn hringjum í vor til að virkja forgjöfina og eiga möguleika á að vinna til verðlauna í mótum í sumar.

Óvirk forgjöf eru þeir sem hafa ekki skilað inn fjórum hringjum til forgjafar á árinu sem var að líða. Samkvæmt forgjafarkerfi EGA og GSÍ þarf að yfirfara forgjöf meðlima á landinu og athuga hvort að kylfingar séu með rétta forgjöf miðað við spilamennsku síðasta árs. Forgjöf getur hækkað eða lækkað allt að þrjú högg á milli ára.

Sjá reglur um forgjöf á heimasíðu GSÍ www.golf.is