Forevermótið haldið á sunnudaginn

Kvennamót Forever.is verður haldið núna á sunnudaginn, 23. júní. Þetta árlega mót hefur alltaf verið vel sótt og útkoman verið skemmtileg keppni milli kvenkylfinga GA sem og annarra.

Frábæru veðri er spáð um helgina, þannig þetta er flott tækifæri til að sleikja sólina í góðum félagsskap og vinna kannski glæsileg verðlaun í boði Forever á sama tíma.

Mótið er opið og verða veitt verðlaun fyrir besta skor í höggleik og efstu 6 sætin í punktakeppni.

Nándarverðlaun verða einnig á öllum par 3 holum og lengsta teighögg verður á 15. braut. 

 

Skráning er hafin á golf.is, en að venju má auðvitað hringja í frábæru skrifstofustrákana okkar í síma 462-2974