Foreldrafundur hjá keppnishópum unglinga

Miðvikudaginn 27. maí, kl. 18:30-19:30 í golfskálanum að Jaðri verður haldin upplýsinga og kynningarfundur fyrir alla iðkendur í keppnishópum unglinga og foreldra þeirra. Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður til að auka upplýsingaflæðið, upplýsa um starfið í heild sinni í sumar sem og fyrirkomulag á ferðum í mót sumarsins o.fl. slíkt.  Við vonum að allir iðkendur og foreldrar sjái sér fært að mæta.

Með kveðju,

Sturla Höskuldsson
Golfkennari GA
S: 868-4785