Flott fyrsta mót hjá Veigari og félögum í ETSU

Veigar Heiðarsson og félagar í East Tennessee State áttu frábært fyrsta mót í NCAA deildinni en mótið fór fram á Inverness Club í Ohio. 

ETSU skólinn endaði jafn í 2. sæti á eftir Auburn sem er hæst rankaði háskólinn í Bandaríkjunum á samtals 12 höggum yfir pari.

Veigar lék hringina þrjá á + 3 höggum og munaði um frábæran lokahring sem hann lék á 68 höggum eða þremur höggum undir pari. Frammistaðan skilaði Veigari jöfnum í 12. sæti í einstaklingskeppninni. Hér má sjá úrslit mótsins

Það er skammt stórra högga á milli en ETSU skólinn verður aftur á ferðinni í Chicago á Highlands Invitational á mánudaginn næsta.

Óskum Veigari til hamingju með flottan árangur.