Fjölmenni í páskapúttmóti Freyju

Allir leystir út með Freyjupáskaeggi í teiggjöf

Úrslit urðu eftirfarandi: Í unglingaflokki sigraði Stefán Einar Sigmundsson með 27 pútt, í 2. sæti var Ævarr Freyr Birgisson með 28 pútt og í 3. sæti var Víðir Steinar Tómasson en hann og Lárus Ingi Antonsson voru jafnir en Víðir var með betra skor þegar talið var til baka á seinustu 3 holunum.

Í kvennaflokki sigraði Halla Sif með 28 pútt, í 2. sæti var Anna Einarsdóttir með 29 pútt og Brynja Herborg með 30 pútt í 3. sæti

Í karlaflokki sigraði Sigmundur Ófeigsson með 28 pútt, í 2 sæti var Ólafur Gylfason með 30 pútt og í 3 sæti Jóhann Sigurðsson einnig með 30 pútt. Telja þurfti til baka hjá nokkrum sem voru með 30 pútt.

Golfklúbburinn þakkar öllum þeim sem tóku þátt og Freyju fyrir stuðninginn.

Gleðilega páska