Firmakeppnin 2011 - Úrslit

Vodafone sigraði með 25 punkta.

Það voru yfir 60 fyrirtæki sem voru skráð til leiks í Firmakeppninni sem fram fór í dag – Það voru þeir Geir Kristinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Vodafone á Akureyri og félagi hans Heimir Árnason sem spiluðu fyrir Vodafone og sigruðu á 25 punktum, spilaðar er 9 holur fyrir hvert fyrirtæki og er spilaður betri bolti.

Í öðru sæti var Skýrr/EJS en það voru Guðlaug María Óskarsdóttir og Hallur Guðmundsson sem spiluðu fyrir þá og fengu þau 24 punkta.

Síðan komu nokkur fyrirtæki með 23 og 22 punkta.

Nú er það Vodafone hér á Akureyri sem fær að nafn sitt á þennan elsta og verðmætasta bikar í eigu klúbbsins, sem gefinn var af Helga Skúlasyni augnlækni - hefur verið spilað um hann síðan 1945 en þá vann Smjörlíkisgerð KEA.

Boðið var upp á kaffi og glæsilegt kökuhlaðborð í mótslok.

Vill Golfklúbburinn þakka öllum þessum fyrirtækjum fyrir þeirra stuðning við klúbbinn og kylfingum fyrir þátttökuna.