Firmakeppni GA 2009 - úrslit

Nýja Kaffibrennslan fær bikarinn til varðveislu annað árið í röð.

 

Um 50 fyrirtæki voru skráð til leiks í Firmakeppninni sem fram fór í dag sunnudag - og var það Rúnar Antonsson og Geir Aðalsteinsson sem spiluðu betri bolta til sigurs fyrir Nýju Kaffibrennsluna annað árið í röð og fá þeir til varðveislu í eitt ár elsta og verðmætasta bikar í eigu klúbbsins gefinn af Helga Skúlasyni augnlækni - hefur verið spilað um hann síðan 1945 en þá vann Smjörlíkisgerð KEA.

Í öðru sæti var Sjóvá - fyrir þá spiluðu Hilmar Gíslason og Heimir Jóhannsson og í 3. sæti var Neyðarlínan en fyrir þá spiluðu þeir Ainbjörn Kúld og Jason Wright. Hilmar og Heimir höfðu betur í bráðabana á 18 um 2. sætið.

Boðið var upp á kaffi og glæsilegt kökuhlaðborð í mótslok.